Camus public
[search 0]
Mai Mult
Download the App!
show episodes
 
Dóp, heimspeki, Guð, vonbrigði, fagurfræði og furðufuglar - öllu þessu fáum við að kynnast þegar skyggnst er bak við tjöldin í heimi íþróttanna og íþróttamaðurinn og líf hans er skoðað frá öðru sjónarhorni en við gerum venjulega. Umsjón: Guðmundur Björn Þorbjörnsson.
  continue reading
 
Loading …
show series
 
Eftir þrjátíu ára eyðimerkurgöngu er Liverpool enskur meistari í fótbolta. Að baki þeim mikla sársauka sem fótum troðnir stuðningsmenn Liverpool hafa þurft að þola, liggur dýpri merking um þjáningu hins réttláta, hlutverk mannsins sem „lúsers", og um Guð sem felur sig. Í sérstökum aukaþætti Markmannshanskana hans Alberts Camus fjallar Guðmundur Bjö…
  continue reading
 
Í áttunda og síðasta þætti Markmannshanskanna hans Alberts Camus veltir Guðmundur Björn Þorbjörnsson því fyrir sér hvort ákveðnir íþróttamenn geti talist til snillinga. Er það Michael Jordan, Serena Williams, Magnus Carlsen eða Lionel Messi? Margir eru kallaðir en fáir útvaldir. Snillingur er ekki það sama og snillingur, og hér er lagður dómur á þa…
  continue reading
 
Í sjöunda þætti Markmannshanskanna hans Alberts Camus fjallar Guðmundur Björn Þorbjörnsson um dauðann, og að sjálfsögðu í tengslum við íþróttir og íþróttamanninn. Það er ýmislegt við dauða íþróttamannsins sem gæti skerpt sýn okkar á íþróttamanninn sjálfan, hvaða hugmyndir við gerum um hann og hvaða væntingar við höfum til hans. Og dauði þeirra kann…
  continue reading
 
Í sjötta þætti Markmannshanskanna hans Alberts Camus er fjallað um það hvers vegna hommar spila ekki fótbolta. Vissulega spila jú einhverjir hommar fótbolta - en þeir eru ekkert sérstaklega góðir í fótbolta, eða ná neitt sérstaklega langt ef litið er á hreina og beina tölfræði. Sem er áhugavert, því í hinum vestræna heimi eiga samkynhneigðir karlme…
  continue reading
 
Í fimmta þætti er fjallað um það þegar íþróttamaðurinn dettur af vagninum; missir tökin á sjálfum sér, sportinu og veruleikanum - þótt innan vallar virðist allt í lukkunnar velstandi. Hvað veldur því að okkar lánsamasta fólk, okkar bestu menn, leiðast inn á brautir glæpa, fíkniefna og annars ófögnuðar? Gestur þáttarins er Ólafur Gottskálksson, sem …
  continue reading
 
Í fjórða þætti Markmannshanskanna hans Alberts Camus skoðar Guðmundur Björn Þorbjörnsson samband fagurfræði og íþrótta. Hér er þó ekki verið að vísa í fagran líkamsburð íþróttamanna eða neitt þvíumlíkt, heldur fagurfræði frásagnarinnar, kappleikjaslýsinganna og sjálfrar umfjöllunarinnar um leikinn. Að baki hverri góðri sögu býr góður sögumaður, mil…
  continue reading
 
Í þriðja þætti Markmannshanskanna hans Albert Camus er fjallað um það þegar hlutirnir ganga ekki upp. Þegar loforðin rætast ekki, og fyrirheitin bregðast. Í þættinum ræðir Guðmundur Björn Þorbjörnsson við körfuboltamanninn Pavel Ermolinskij og knattspyrnumanninn Ingólf Sigurðsson. Ferlar þeirra Pavels og Ingólfs eru ólíkir, rétt eins og mennirnir s…
  continue reading
 
Í öðrum þætti þáttaraðarinnar Markmannshanskarnir hans Albert Camus ræðir Guðmundur Björn Þorbjörnsson við knattspyrnumaninn Emil Hallfreðsson um trú og samband íþróttamannsins við Guð, hvort Guð skipti sér á annað borð af íþróttaleikjum og hvort það stoði nokkuð að leita til Guðs, þegar það eru 20 metrar á sekúndu og þið eruð einum manni færri. Í …
  continue reading
 
Í fyrsta þætti Markmannshanskanna hans Albert Camus veltir Guðmundur Björn Þorbjörnsson því fyrir sér af hverju óhefðbundnir íþróttamenn vekja eftirtekt. Hvað er svona aðlaðandi við vínrækt Andrea Pirlo, áhugaleysi Björns Bergmanns á fótbolta og kosmólógíu Kyrie Irving? Ólafur Stefánsson, fyrrum handboltamaður og einn allra óhefðbundnasti íþróttama…
  continue reading
 
Loading …

Ghid rapid de referință